 |
Sóley, Egill og Alexander Björn hafði þetta að segja þann 11/11/2007 klukkan 15:23: OMG, ÆÐISLEGAR myndirnar í sept. albúminu jú og auðvitað allar hinar líka :o) rosa gaman að skoða og takk fyrir okkur í gær :o)
Ella hafði þetta að segja þann 30/08/2006 klukkan 12:35: Jiminn Íris, ég held að það líði jafn mikið yfir mig og þig þegar Breki byrjar í skóla! Ótrúlegt hvað þessi börn stækka hratt.
Kannast við þetta "gera sjálf" skeið, Kjartan er á þessu stigi núna og er stundum að gera foreldra sína vitlausa! :-)
Maður lærir þolinmæði á að eiga þessi blessuðu börn ....
Ella hafði þetta að segja þann 07/04/2006 klukkan 10:00: Gaman að sjá nýjan pistil frá ykkur og gott að heyra að allt gangi vel! Hlakka til að skoða nýjar myndir, þessi börn stækka svo hratt! Kíki í heimsókn í júni og tek þau betur út þá!
Asta hafði þetta að segja þann 01/02/2006 klukkan 12:55: Var ad lesa sidasta pistilinn ykkar. Mikid er frabaert ad heyra ad thu skulir vera med svona skilningsrika vinnuveitendur, Iris. Thetta virdist vera mjoeg god lausn! Vonum nu samt ad thetta flensutimabil se ad verda buid.
Bestu kvedjur fra Gauto,
Asta
Dóra og Siggi Palli hafði þetta að segja þann 13/11/2005 klukkan 19:30: Vaá hvað þessir flottu krakkar stækka rooosalega hratt!!!
Bestu kveðjur úr Hornafirðinum ;)
Sessý hafði þetta að segja þann 07/11/2005 klukkan 03:31: VÁ hvað þið eruð sæt, elsku litlu dúllurnar!!! Það er svo augljóst hvað þið eruð líka góð og yndisleg heilbrigð börn. :):) Hlakka til að sjá ykkur bráðlega!!
Bestu kveðjur,
Sessý (kíkið á Elí við tækifæri: www.barnaland.is/barn/16351)
Þórey og Ágúst Axel "aprílgaur" hafði þetta að segja þann 05/10/2005 klukkan 22:03: Halló fallegu börn! Skemmtilegar myndir af ykkur :-) Hlakka til að hitta ykkur á aprílhittingi.
Bestu kveðjur - Þórey og Ágúst Axel
Binna hafði þetta að segja þann 21/09/2005 klukkan 10:21: hæ hæ ! Gaman að rekast á þess síðu þar sem við erum skyld ! En málið er að ég og pabbi ykkar eigum sömu ömmu! Hana Binnu ömmu :) Kær kveðja úr Hafnarfirði
Amma Hulda hafði þetta að segja þann 12/06/2005 klukkan 17:46: Hae elsku kruttin min. Kvedjur fra ommu sem er i systraferd i London. Voda gaman, er buin ad fara i Hamleys. Labbadi ut med stora poka. Sjaumst, kvedja amma Hulda.
Ásta hafði þetta að segja þann 06/04/2005 klukkan 09:35: Hæ, hæ!
Vildi bara óska ther, Íris, til hamingju med nýju vinnuna. Vona ad thad rætist fljótlega úr thessu med pössunina.
Bestu kvedjur,
Ásta
Sessý & Elí hafði þetta að segja þann 05/04/2005 klukkan 18:59: Vá hvað þið eruð yndisleg fjölskylda!! Get ímyndað mér að það sé NÓG að gera nú þegar þú, Íris, ert komin að vinna. Vonandi gengur þetta vel:) En VÁÁÁÁ hvað katla er eitthvað orðin STÓR OG FULLORÐINSLEG! Og þau öll að sjálfsögðu ENDALAUST sæt. :):)
Kær kveðja úr Kjarrmóunum:)
Sigurlaug Þóra hafði þetta að segja þann 02/01/2005 klukkan 22:25: Hæ hæ, mér langaði bara svona rétt að segja hæ. Ég var að skoða þessar líka flottu myndir af krílunum. Vonandi hafið þið haft það sem allra best um jólin, sjáumst vonandi bráðlega :) Knús og kossar frá Eyþóri frænda og Sigurlaugu
Helga frænka hafði þetta að segja þann 09/11/2004 klukkan 13:34: Til hamingju með afmælið í gær Katla mín. Voðalega ertu orðin stór stelpa. Þúsund kossar frá Helgu ömmusystir
Aron Ben hafði þetta að segja þann 31/10/2004 klukkan 22:23: Hæ litlu sætu frændsystkynin mín!
Langaði bara að segja hæ og segja ykkur af heimasíðunni minni sem mamma og pabbi gerðu handa mér, slóðin er www.847.is/aronben ef ykkur langar til að kíkja. Annars get ég ekki beðið eftir að verða nógu stór til að leika við ykkur öll! Það verður sko örugglega gaman. Mamma biður að heilsa og þakkar fyrir síðast, þar sem hún skemmti sér alveg konunglega :)
Halldóra Guðlaug og co hafði þetta að segja þann 20/08/2004 klukkan 10:08: hæ Íris og co til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn. Sjáumst vonandi á Kjaló í framtíðinni
Kveðja frá Halldóru og co (vinkona Iðunnar)
ps við erum á barnalandi
www.barnaland.is/barn/16539
www.barnaland.is/barn/16540
Afi Markús og amma Soffa hafði þetta að segja þann 02/08/2004 klukkan 18:49: Erum hjá ömmu Huldu að skoða fallegu langömmu börnin sín.
Ástarkveðja
amma og afi
Sessý og Elí hafði þetta að segja þann 15/07/2004 klukkan 19:18: Guð minn góður hvað þið eruð ótrúlega rík og heppin fjölskylda!!!! Ekkert SMÁ sætar fjölskyldumyndir:)
Kær kveðja frá okkur í Álakvíslinni
amma Hulda hafði þetta að segja þann 27/06/2004 klukkan 18:18: Vorum að skoða myndir af fjölskyldunni. Fallegur og föngulegur hópur.
Kveðja frá ömmu Huldu og langömmu Siggu
Steina hafði þetta að segja þann 08/06/2004 klukkan 17:34: Hæ Freyr og Íris
Innilega til hamingju með litlu rúsínu....myndarlegur hópur er þetta að verða hjá ykkur :)
p.s. ég á von á svona rúsínu eftir rúma 2 mán :)
ágústa hafði þetta að segja þann 23/05/2004 klukkan 07:49: Elsku Svava, innilega til hamingju með nafnið. Vel valið hjá ykkur Íris og Freyr. Til hamingju :)
Asta og Einar hafði þetta að segja þann 22/05/2004 klukkan 05:20: Innilegar hamingjuoskir med nyju dotturina. Thad verdur aldeilis lif og fjoer hja ykkur i Lomasoelunum naestu arin! :-)
Asta og Einar
Ágústa, ömmusystir hafði þetta að segja þann 08/05/2004 klukkan 22:14: Innilegar hamingjuóskir með ´Maisólina´ ykkar. Gangi ykkur allt í haginn.
Eyþór og Sigurlaug hafði þetta að segja þann 08/05/2004 klukkan 13:51: Elsku Íris og Freyr til hamingju með litlu prinsessuna:)
Ásdís Huld hafði þetta að segja þann 07/05/2004 klukkan 12:06: Hjartanlega til hamingju þið öll með sætu prinsessuna ykkar!
Amma Hulda og Lilja ritari hafði þetta að segja þann 06/05/2004 klukkan 20:37: Til hamingju elskurnar okkar,
hún er alveg ofboooðsleega falleg og flott. Gangi ykkur sem allra best og vonandi verður Íris fljót að ná sér eftir skurðinn.
Hrafnkell & Ella hafði þetta að segja þann 06/05/2004 klukkan 18:55: Hjartanlega til hamingju! Þetta er ekkert smá myndarleg skvísa!!! Maí er líka góður mánuður til að eiga ammli í ... :)
Anna&Halldòr hafði þetta að segja þann 05/05/2004 klukkan 21:31: Hej och ett jätte stort grattis till er alla och välkommen till världen lilla (hrm... STORA) flicka! Många kramar från oss!
Asta og Einar hafði þetta að segja þann 27/04/2004 klukkan 10:09: Hae! Vid hugsum mikid til ykkar thessa dagana. Vonum ad allt gangi vel og ad krilid fari ad lata sja sig.
Bestu kvedjur,
Asta og Einar
Ólöf dagmamma hafði þetta að segja þann 29/03/2004 klukkan 21:52: hæ hæ mikið hefur Breki stækkað og Katla líka vonum að þið hafið það gott kær kveðja Ólöf og fjölsk.
Amma Hulda hafði þetta að segja þann 17/06/2003 klukkan 11:00: Heilar og sælar elskurnar mínar.
Innilega til hamingju með nýja fína heimilið ykkar.
Ég var að setja inn nýjar myndir en hef ekki hugmynd um hvert þær fóru????
Kveðja frá okkur í Hamravíkinni
Fjóla og Heidi hafði þetta að segja þann 09/03/2003 klukkan 22:17: Hæ Breki og Katla!
Þið eruð sætustu systkin í heimi og er það nú ekki titill af slakara taginu enda ekki langt að sækja það:) Ástar kveðjur frá ömmusystir Fjólu og ömmusystur-dóttur frænku "flottur titill" Heidi.
Lone Holm Pedersen hafði þetta að segja þann 09/03/2003 klukkan 19:01: Du må undskylde, at jeg skriver, for jeg ved ikke, om du er den rette, og jeg forstår ikke sproget. Jeg vil bare høre, om den fjola markusdottir, der har skrevet i din bog, er den, der har datteren Heidi Holm Pedersen. Jeg vil gerne i kontakt med dem, hvis det er, for det er min halvlillesøster, altså Heidi. Er det dem, vil jeg blive utrolig glad, hvis du ville melde tilbage. Undskyld ulejligheden. Kærlig hilsen Lone, Danmark
Helga frænka og Elfa frænka hafði þetta að segja þann 31/01/2003 klukkan 09:21: Elsku Breki okkar,
Til hamingju með 2 ára afmælið elsku dúllan okkar.
Innilegar hamingjuóskir með nafnið Katla okkar líka, afsakið síðbúnar hamingjuóskir með það.
Ella hafði þetta að segja þann 08/01/2003 klukkan 10:31: Til hamingju með nafnið Katla! Ætli þú verðir jafn óútreiknanleg og hún "nafna" þín? :-)
Amma Hulda hafði þetta að segja þann 06/01/2003 klukkan 16:07: Til hamingju með nafnið Katla mín. (En hvað þetta er flott að hafa bleikt og blátt í bakgrunninn).
Nafnagiftin var látlaus og fín. Veislan sveik engan.
Við fórum í gær í heimsókn til Fjólu langa langa ömmu (93 ára og eldklára í kollinum), það voru teknar myndir af fimm ættliðum þar sem Freyr var fulltrúi karlþjóðarinnar.
Bless, bless.
Ásta María hafði þetta að segja þann 02/01/2003 klukkan 11:52: Gleðilegt ár kæra fjölskylda.
Skemmtileg síða, gaman að geta skoðað "Dís". Hlakka til að heyra nafn "Dísarinnar"
kveðja Asta María (og Steinn)
Indíana Ósk hafði þetta að segja þann 31/12/2002 klukkan 01:16: Halló Breki minn takk æðislega fyrir boltann, ég segi bara Breki godur bolta, og enn meiri þakkir fyrir jólakortið. Mamma er búin að ramma myndina inn og ég dröslast með hana um allt og ég segi öllum hver er á myndinni. Ég hlakka mikið til að hitta þig á komandi ári og ekki vera hræddur annað kvöld, þetta eru bara jólaljós með læti. Þín vinkona Indíana Ósk
May-Britt och Krister hafði þetta að segja þann 22/12/2002 klukkan 08:24: God Jul och Gott nytt År önskar vi i Tidan. Ett jätte stort grattis till Er lilla flicka. En stolt farmor ringde och berättade, vi har varit inne på Brekis sida och tittat på lilla syster, hon var jätte fin. Men som vanligt har ni inget namn på henne hon ska döpas först sa Hulda innan vi får reda på vad hon ska kallas. Alla vill väl komma med namnförslag på henne, så vill jag också så mitt förslag är Saga ett gamal fornnordiskt namn som anvämds över hela Norden jag antar att så är hos Er också.
Har Ni tid lust och ork så skicka över Er postadress jag skulle också villa ha Huldas postadress jag har inte skickat något julkort bara för att jag inte har postadressen vet inte vilka gator Ni bor på. Massor av jul hälsningar från oss till Er och var rädda om varandra och krama om barnen.
Múzak Frændi hafði þetta að segja þann 30/11/2002 klukkan 02:01: Til hamingju Breki með alveg æðislega sæta litlu systur. Mamma og Pabbi hljóta að vera að springa úr stolti! :)
vííííí :)
Glaður Svavar skrifar...
Langamma og langafi hafði þetta að segja þann 26/11/2002 klukkan 18:18: Takk fyrir að fá að sjá myndirnar af fallegu börnunum ykkar. ,,Það er þó aldrei nema satt að þetta sé ættgengt".
Langamma Soffía og langafi
Markús
Helga frænka hafði þetta að segja þann 20/11/2002 klukkan 21:18: Elsku litla fjölskylda,
Mig langaði bara að þakka ykkur fyrir að vera svo elskuleg og góð að koma með litlu prinsessuna í heimsókn til okkar hér í Kríunesinu. Hún er náttúrulega gullfalleg eins og hún á kyn til elskan litla, og mun væntanlega ekkert gefa stóra bróður eftir í framtíðinni. Nú finnst manni Breki allt í einu orðinn voðalega stór og þroskaður og ég veit að hann verður frábær stóri bróðir. Ég vil óska ykkur enn og aftur innilega til hamingju með litlu dótturina, og bið ykkur öllum gæfu og gengis í framtíðnni.
Hrannar og Linda hafði þetta að segja þann 20/11/2002 klukkan 12:43: Innilega til hamingju með litlu snúlluna, sé að hún hefur dafnað vel í bumbunni :)
Guðlaug og Andri Snær hafði þetta að segja þann 16/11/2002 klukkan 10:40: Elsku Íris, Freyr og Breki!
Innilega til hamingju með litlu prinsessuna.
Kveðja Guðlaug og Andri Snær
Amma Hulda hafði þetta að segja þann 10/11/2002 klukkan 10:25: Til hamingju elsku krúttin mín öll.
Ég ætla að skrifa hér í gestabókina til að taka ekki burt nýjustu og merkilegurstu fréttir mánaðarins í pistlunum.
Það er ekki nóg með að amma fékk að hafa STÓRA ömmubarnið um helgina, það er líka komin lítil prinsessa (annars hefði hann ekki verið hér!!!).
Það er svolítið erfitt að skrifa núna, það er lítill hnoðari að hnoðast í ömmu sinni.
Frábærar myndir komnar (er þegar búin að prenta þær út og setja í ramma).
Kveðja amma Hulda
Stefán Þór hafði þetta að segja þann 09/11/2002 klukkan 21:58: Til hamingju! knús og kveðjur frá fallen ;)
Árdís og Katrín hafði þetta að segja þann 09/11/2002 klukkan 13:48: Elsku Breki, Freyr og Íris. Til hamingju með litlu systur/dóttur.
Við vorum nú að vonast eftir myndum af henni hérna, en fundum engar. Við verðum bara að athuga það seinna. Ástarkveðjur frá Árdísi ömmusystur og Katrínu frænku.
Indíana Ósk hafði þetta að segja þann 11/10/2002 klukkan 23:02: Halló Breki, mamma gerði smá vitleysu hérna áðan, en mig langaði bara að sjá heimasíðuna þína, hún er rosalega fín. Ég hlakka til að sjá þig á mánudaginn hjá Ólöfu, þín vinkona Indíana Ósk
Björn hafði þetta að segja þann 23/09/2002 klukkan 12:19: Það vantar ská- afana og ömmuna í ættartréið, smá ábending.
Annars er Breki flottastur!!!
Kveðja
Afi
Fjola Markusdottir hafði þetta að segja þann 01/09/2002 klukkan 20:20: Elsku Breki! Þú gerðir mig að ömmusystir þrátt fyrir að ég væri orðin amma sjálf fyrir löngu síðan. Þú ert og verður aðal "gullmolinn" minn. Ég elska þig yndislegi drengur. Skilaðu kveðjum til mömmu og pabba og bumbubúans. Þín ömmusystir Fjóla
Sæunn Ólafs hafði þetta að segja þann 31/08/2002 klukkan 19:55: Mikið er gaman að geta fylgst svona með fólki sem maður er ekki í daglegum samskiptum við. Mikið óskaplega er þetta nú myndarlegur piltur líka!
Kveðja,
Sæja pæja
Amma Hulda hafði þetta að segja þann 07/08/2002 klukkan 11:15: Hæ Breki minn og takk fyrir síðast.
Mig langar að segja frá þessum frábæra ömmu strák sem ég á. (Ef einhver skildi ekki vita það?). Ég er alltaf svo motin þegar hann er búin að gista hjá mér og nú er hann nýbúin að vera hér.
Breki var hjá ömmu og afa í lok Verslunarmannahelgarinnar. Þegar þessi elska vaknaði kl 06:00 kúrði hann bara áfram hjá ömmu í Sindra rúmi (hún var flúin úr sínu rúmi , þar var ekki pláss fyrir strákum).
Þegar Breki var búin að leika sér við Jón og Sindra fyrir hádegi var lagt af stað í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn. Þar grilluðum við pylsur og lékum okkur í leiktækjum. Breki þurfti að fá sína hvíld og svaf vært í pollagallanum og vaknaði svo kóf sveittur (löngu hætt að rigna). Í húsdýragarðinum var Breki önnum kafin við að gefa selunum laufblöð, tíndi af götunni og henti yfir girðinguna (og amma þóttist ekkert sjá). Eftir Húsdýragarðinn löbbuðum við í gegnum Grasagarðinn (ofboðslega fallegur) og fórum í pönnukökur til Svölu frænku og Leifs. Þar gerðist heilmikið ævintýri, (burtséð að ég datt í gegnum borðstofustólinn). Kötturinn hennar Sonju hann Púki kom inn með lítinn fuglsunga í kjaftinum og þvílík hljóð sem heyrðust þegar það uppgötvaðist að unginn var lifandi. (Það fyrsta sem amma hugsaði: ,,Það getur ekki varið neitt af mínum börnum sem hefur pissað á gólfið, Jón er svo stór, Sindri sofandi úti í bíl og amma var að skipta á Breka").
Það tókst sem sagt að bjarga unganum, en Breki fylgdist grannt með þegar hann flögraði um alla stofuna að leita skjóls frá þessum óargadýrum.
Eftir þessa reynslu keyrðu amma og afi mig heim og vonast þau til að ég fái að koma sem fyrst aftur (með eða án foreldra).
Kær kveðja
amma
Lilja ömmusystir hafði þetta að segja þann 01/08/2002 klukkan 13:52: Það var mikið að maður fékk að vita netfangið, ég væri löngu búin að heimsækja hann Breka minn ef einhver hefði getað gloprað þessu út úr sér fyrr.
Þegar um er að ræða svona fallegan og frábæran dreng eins og Breka vill maður standa sig í ömmusystrahlutverkinu.
Til hamingju með nýju íbúðina og nóvember-glaðninginn.
Kossar á færibandi til Breka. (Freyr þú ert orðinn of gamall til að fá kossa frá frænku!)
Sjáumst!
Helga frænka hafði þetta að segja þann 31/07/2002 klukkan 21:27: Elsku Breki minn og yndislegu foreldrar hans.
Það var mjög gaman að skoða síðuna ykkar og sjá þennan Gullmola við leik og störf. Ég væri löngu búin að kíkja á síðuna ef ég hefði vitað slóðina fyrr. Ég mun heimsækja hana aftur seinna til að fylgjast með framgangi Breka, vexti hans og þroska. Ég óska ykkur alls góðs varðandi uppeldi hans og til hamingju með að eiga von á öðrum eins hjartaknúsara eða krúsindúllu. Og til hamingju með kaupin á nýju íbúðinni líka.
kærar kveðjur
Helga frænka.
Beta hafði þetta að segja þann 22/07/2002 klukkan 09:58: Halló Breki!
Mikið rosalega ertu fallegt og gáfað barn, það er greinilegt að þetta er ættgengt. :=)
B
Iðunn hafði þetta að segja þann 14/07/2002 klukkan 14:58: Rosalega er þetta fín síða hjá ykkur!!! Það var gaman að sjá þig og mömmu þína þegar þið komuð í heimsókn um daginn. Vonandi kíkirðu aftur í heimsókn fljótlega. Bestu kveðjur til þín sæti gutti og allrar fjölskyldunnar. Iðunn
laufey hafði þetta að segja þann 07/07/2002 klukkan 12:41: ofsalega ertu fallegur drengur.
Amma Hulda hafði þetta að segja þann 26/06/2002 klukkan 19:09: Hæ elsku drengurinn minn!!!
Ég ætlaði bara að þakka fyrir síðast. Hann Breki minn er algjör perla. Hann var sko að gista hjá ömmu og afa um síðustu helgi og eins og fyrr segir þá var (og er) hann algjört æði.
Ef eitthvað er sem manni líkar ekki eða að hann vill breytingar segir hann bara í mestu rólegheitum: ,,Jæja".
Amma fór með drenginn sinn að hjóla á stóru hjóli, mestur tíminn fór í að stilla stólinn og hjálminn en þegar lagt var af stað í hjólatúr (meðfram húsinu) heyrðist í mínum: ,,Jæja".
Öðru verð ég að létta af mínu ömmuhjarta. En þannig var að það var full mikið af drasli á gólfinu hjá Jóni frænda svo sú gamla tók fram ryksuguna. Eftir smá stund fannst henni eitthvað vanta, jú það var Breki, hvar var hann? Um leið og ég slökkti á ryksugunni kom Breki út úr hjónaherberginu með tár í öðru auganu og útréttar hendur á móti ömmu sinni. Það heyrðist ekki orð frá þessari elsku en óttinn var greinilegur og amma var að deyja úr samviskubiti.
Nú verð ég að láta staðar numið að þessu sinni.
Hér eru smá fráhverfseinkenni þar sem ég hef ekkert að læra þessa dagana (og í náinni framtíð).
Kær kveðja amma
Amma Hulda hafði þetta að segja þann 14/06/2002 klukkan 17:31: Ég ýtti óvart á vitlausan takka áðan, en hér kemur það sem ég ætlaði alveg að fara að segja.
Það er alltaf verið að skamma mann fyrir að koma svo sjaldan hérna inn og er ég að reyna að bæta úr því. Maður fer nú ekki að klikka í ömmuhlutverkinu þegar maður hefur loksins nægan tíma til þess að sinna því (ekkert að læra).
Sindri var að koma rétt í þessu og segir ,,datt, datt". Ég veitti því víst ekki næga athygli og þá sagði hann:,, Mamma, ég er Breki" (Hann notar það mjög mikið).
Kveðja amma Hulda
Amma Hulda hafði þetta að segja þann 22/05/2002 klukkan 15:22: Mikið var nú gaman að skoða allar nýju myndirnar. Ég var að prenta út myndina þar sem allir fjórir voru að tannbursta sig en eitthvað klikkaði, prentarinn tók ekki glansblaðið. Það er bara að reyna aftur.
Sjáumst!
Freyr hafði þetta að segja þann 17/05/2002 klukkan 08:49: Verið velkomin á gestabókasíðu Breka. Endilega skrifið smá ef þið eigið leið framhjá.
Þessi gestabók kemur í staðin fyrir 'spjall' síðu sem var hér áður. Það var samt frekar flókið kerfi og fólk var hvort eð er bara að segja halló þannig að þá ætti þessi breyting vonandi að gera hlutina einfaldari og skemmtilegri.
|
|
 |